KRAFS er opið samvinnuverkefni fyrir jafnt leikna sem leikmenn. Að verkefninu stendur lauslega skipulagður hópur listafólks úr ólíkum greinum. Verkefnið fer fram á Verkstæðinu í Listasafni Íslands við Fríkirkjuveg, dagana 30. júní - 6. júlí 2025. Áhugasöm eru hvött til þess að koma við á opnunartíma og rýna í eða taka þátt í ferlinu. Aðferðafræði hópsins er byggð á stefnuyfirlýsingu og vinnu The Scratch Orchestra á 7. og 8. áratug síðustu aldar í Bretlandi. Stefnuyfirlýsinguna má nálgast á þessum hlekk. Þátttakendur leggja til hugmyndir og skyssur sem framkvæmdar eru af hópnum á vinnutíma.